Verðskrá
Í appinu sérðu fast heildarverð áður en þú staðfestir ferðina. Verð borgarferða byggist á töxtunum hér að neðan og innifelur 15% álag til að mæta umferðartöfum og öðrum ófyrirséðum töfum.
Venjulegur bíll · 1–4 farþegar
| Taxti | Upphafsgjald | km 1–4 | km eftir 4 |
|---|---|---|---|
| Dagur — virka daga 08:00–16:00 | 856 kr. | 464 kr. | 351 kr. |
| Kvöld, nótt og helgi | 856 kr. | 548 kr. | 439 kr. |
| Stórhátíð | 1.157 kr. | 739 kr. | 593 kr. |
XL · 5–8 farþegar
| Taxti | Upphafsgjald | km 1–4 | km eftir 4 |
|---|---|---|---|
| Dagur — virka daga 08:00–16:00 | 1.108 kr. | 606 kr. | 458 kr. |
| Kvöld, nótt og helgi | 1.108 kr. | 713 kr. | 569 kr. |
| Stórhátíð | 1.497 kr. | 962 kr. | 767 kr. |
Stórhátíðartaxti
Stórhátíðartaxti gildir á eftirfarandi tímabilum:
- Föstudaginn langa, páskadag og 17. júní: allan sólarhringinn.
- Um jól: frá kl. 12:00 á aðfangadag til loka jóladags.
- Um áramót: frá kl. 12:00 á gamlársdag til loka nýársdags.
Keflavíkurflugvöllur ↔ höfuðborgarsvæðið — fast verð
| Bílstærð | Verð |
|---|---|
| Venjulegur bíll · 1–4 farþegar | 22.250 kr. |
| XL · 5–8 farþegar | 28.750 kr. |
Verðin gilda í báðar áttir. Flugstöðvargjaldið er innifalið.
Ferðir frá Keflavíkurflugvelli á nærsvæði reiknast eins og venjulegar Núna-ferðir.
Sjá nánar um flugvallarferðir →
10% afsláttur aldraðra og öryrkja
Farþegar 67 ára og eldri og öryrkjar fá 10% afslátt af öllum ferðum. Eftir staðfestingu réttar í prófíl appsins reiknast afslátturinn sjálfkrafa inn í verðið.
Forpöntun
Þú getur bókað ferð allt að 7 dögum fram í tímann.
Afbókun og gjöld
Þegar afbókunargjald eða gjald vegna þess að farþegi mætir ekki á við nemur það 15% af ferðaverðinu sem átti að greiða.