Um Ladies First

Ný nálgun í leigubílaþjónustu á Íslandi — með öryggi og vellíðan kvenna í fyrirrúmi, bæði við stýrið og í farþegasætinu.

Af hverju Ladies First?

Leigubílaferð á að byggjast á trausti og fyrirsjáanleika. Hjá Ladies First geturðu óskað eftir kvenbílstjóra, séð hver sækir þig og vitað hvað ferðin kostar áður en þú stígur upp í bílinn.

Markmiðið er að skapa umhverfi þar sem bæði farþegum og bílstjórum líður vel.

Hlutverk Ladies First

Hlutverk okkar er að veita farþegum aðgang að traustri, einfaldri og öruggri leigubílaþjónustu. Hver ferð er rekjanleg frá upphafi til enda.