Skilmálar farþegaapps Ladies First

Útgáfa 1.7

Skilmálar

1. Þjónustan

Ladies First Taxi ehf., kennitala 490125-0430, Þarabakka 3, 109 Reykjavík, selur leigubílaferðir í gegnum farþegaapp Ladies First.

Ladies First hefur starfsleyfi leigubílastöðvar nr. 61 frá Samgöngustofu. Netfang er info@ladiesfirst.is.

2. Gildissvið

Þessir söluskilmálar gilda um leigubílaferðir Ladies First og notkun farþegaappsins.

3. Persónuupplýsingar og ferðaskráning

Upplýsingar um notandareikning, bókun, ferð, greiðslu og samskipti eru notaðar til að veita þjónustuna, sinna lögbundinni ferðaskráningu, gefa út kvittanir og sinna fyrirspurnum og kvörtunum.

Nákvæm gögn um akstursferil, staðsetningarpunkta og heimilisföng upphafsstaðar, viðkomustaða og áfangastaðar eru hluti lögbundinnar rafrænnar ferðaskráningar. Þau eru dulkóðuð og varðveitt í 60 daga frá því að ferð var ekin. Að þeim tíma liðnum er þessum nákvæmu gögnum eytt. Almenn ferðafærsla með staðaheitum, dagsetningu, verði og kvittun varðveitist aðskilin frá nákvæmu ferðagögnunum.

Varðveislutímar annarra gagna fara eftir tilgangi vinnslunnar og viðeigandi skyldum. Þessi 60 daga frestur gildir því ekki um öll gögn þjónustunnar.

Fyrirspurnir um persónuupplýsingar og óskir um að nýta réttindi þín má senda á info@ladiesfirst.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar.

Samþykki þessara skilmála kemur ekki í stað sérstaks samþykkis fyrir vinnslu skjala vegna valfrjáls afsláttar.

4. Samþykki og útgáfur

Samþykki þitt á þessum skilmálum er persónulegt. Innskráning ein og sér kemur ekki í stað samþykkis.

Varðveita skal þær útgáfur skilmálanna sem giltu við viðkomandi viðskipti.

Skilmálarnir takmarka ekki ófrávíkjanleg réttindi þín samkvæmt lögum.

5. Aðgangur og val bílstjóra

Þessir skilmálar gilda um leigubílaferðir sem þú bókar í appinu eða tengir við appið áður en ferð hefst.

Allir eru velkomnir sem farþegar.

Áður en þú bókar skráirðu þig inn og lýkur við prófílinn þinn. Gefðu upp rétt símanúmer með landsnúmeri svo hægt sé að hafa samband vegna ferðarinnar.

Þú getur valið kvenbílstjóra eða næsta lausa bílstjóra. Framboð fer eftir því hverjir eru lausir. Valinu þínu er ekki breytt án þíns samþykkis.

Við bókun gefurðu upp upphafsstað, áfangastað, farþegafjölda og farangur og velur bílstærð og aukaþjónustu eftir þörfum.

6. Bókun og verð

Þú sérð ferðaupplýsingar og fast heildarverð áður en þú staðfestir ferðabeiðnina. Farðu yfir upplýsingarnar áður en þú staðfestir.

Appið sýnir hvort leitað sé að bílstjóra eða bílstjóri hafi tekið ferðina. Móttekin ferðabeiðni er ekki staðfesting á því að bílstjóri hafi tekið hana.

Þú getur forpantað allt að 7 dögum fram í tímann.

Samþykkt heildarverð, með þeim afslætti sem við á, er það verð sem þú átt að greiða. Umferðartafir hækka ekki verðið eftir staðfestingu.

7. Verðskrá og afsláttur

Við útreikning borgarferða er stuðst við taxtana í verðskrá og bætt við 15% álagi til að mæta umferðartöfum og öðrum ófyrirséðum töfum á leiðinni. Álagið er innifalið í heildarverðinu sem þú sérð áður en þú staðfestir ferðina.

Verðskráin tilgreinir dag-, kvöld-/nætur-/helgar- og stórhátíðartaxta ásamt gildistímum þeirra.

Fast verð milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar er:

  • Venjulegur bíll · 1–4 farþegar: 22.250 kr.
  • XL · 5–8 farþegar: 28.750 kr.

Verðin gilda í báðar áttir. Flugstöðvargjaldið er innifalið.

Aldraðir frá 67 ára afmælisdegi og öryrkjar fá 10% afslátt af öllum ferðum eftir staðfestingu réttar í prófíl appsins. Afslátturinn reiknast sjálfkrafa inn í verðið. Ekki þarf að staðfesta sama gildandi rétt fyrir hverja ferð.

8. Greiðslur

Greiðslur til Ladies First verða afgreiddar í gegnum Rapyd í farþegaappinu. Hægt verður að greiða með korti, Apple Pay eða Google Pay.

Við forpöntun tengirðu greiðslumáta við bókunina. Ferðaverðið er ekki innheimt við forpöntunina.

Áður en ferðin hefst er óskað eftir greiðsluheimild til að taka ferðaverðið frá. Frátekt lækkar ráðstöfunarfé á kortinu en er ekki endanleg innheimta.

  • Ferð pöntuð núna, líka til og frá Keflavíkurflugvelli, eða tengd við appið á götunni: Við bókun eða tengingu, áður en ferð hefst.
  • Forpöntuð borgarferð: Þegar bílstjóri merkir í appinu að hann sé að leggja af stað til að sækja þig, áður en hann ekur af stað.
  • Forpöntuð ferð til Keflavíkurflugvallar: Þegar bílstjóri merkir í appinu að hann sé að leggja af stað, áður en hann ekur af stað, þó eigi síðar en 60 mínútum fyrir bókaðan upphafstíma.
  • Forpöntuð ferð frá Keflavíkurflugvelli: Þegar bílstjóri merkir í appinu að hann sé að leggja af stað til flugvallar, áður en hann ekur af stað.

Við sendum áminningu um greiðslumáta 18 klukkustundum fyrir áætlaða komu flugsins á Keflavíkurflugvöll, ef ferðin hefur þá verið bókuð.

Greiðsluheimild þarf að liggja fyrir áður en bílstjóri ekur af stað.

Þegar bílstjóri lýkur ferð eðlilega verður samþykkt ferðaverð innheimt. Ef gjald vegna afbókunar eða þess að farþegi mætir ekki á við verður aðeins það gjald innheimt og eftirstandandi frátekt losuð. Um ferð sem lýkur ekki vegna bilunar gildir 11. grein.

Ef greiðsluheimild er synjað

Í Núna-ferðum, líka til og frá Keflavíkurflugvelli, er óskað eftir greiðsluheimild við bókun. Núna-ferðir og QR-götuferðir hefjast ekki fyrr en greiðsluheimild fæst. Farþeginn fær skilaboð um að laga eða skipta um greiðslumáta og getur reynt aftur. Ekkert fargjald eða afbókunargjald stofnast vegna synjunarinnar sjálfrar.

Fyrir forpantaða ferð frá Keflavíkurflugvelli fellur bókun niður án gjalds ef greiðsluheimild er synjað.

Fyrir aðrar forpantanir hefurðu 15 mínútur til að laga greiðslumátann. Ef greiðsluheimild er enn synjað að þeim tíma liðnum fellur bókun niður án gjalds.

Ólokin greiðsluathugun eða tæknileg óvissa jafngildir ekki synjun.

Tíminn sem tekur að losa frátekna fjárhæð getur farið eftir banka eða kortaútgefanda.

9. Afbókun

Afbókun er gjaldfrjáls:

  • Á meðan enginn bílstjóri hefur tekið ferðina.
  • Fyrstu 5 mínúturnar frá því að farþegi staðfestir bókunina í appinu, óháð því hvenær bílstjóri tekur ferðina.
  • Þegar forpöntun er afbókuð að minnsta kosti 60 mínútum fyrir bókaðan upphafstíma.
  • Þegar forpöntun er afbókuð áður en bílstjóri hefur merkt í appinu að hann sé lagður af stað að sækja þig.
  • Í forpantaðri ferð, ef bílstjóri var ekki mættur þegar 6 mínútur voru liðnar frá bókuðum upphafstíma og ferðin er ekki hafin.
  • Ef bílstjóri hættir við og leitað er að öðrum bílstjóra.
  • Vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Utan þessara tilvika getur afbókunargjald átt við. Þegar gjaldið er lagt á nemur það 15% af föstu heildarverði ferðarinnar eftir afslátt.

Upphæðin birtist áður en þú staðfestir afbókunina.

Við gjaldfrjálsa afbókun er ekkert gjald innheimt og greiðslufrátekt vegna ferðarinnar, ef hún hefur verið gerð, er losuð.

10. Ef farþegi mætir ekki

Ef þú mætir ekki getur gjald átt við samkvæmt skilyrðunum hér að neðan. Þegar gjaldið er lagt á nemur það 15% af föstu heildarverði ferðarinnar eftir afslátt.

Ekki er innheimt slíkt gjald vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Borgarferðir pantaðar núna

Gjald getur átt við ef bílstjóri hefur staðfest komu á upphafsstað, tilkynnt komu sína og reynt að ná sambandi við þig, en þú mætir ekki.

Ferðir til Keflavíkurflugvallar og forpantaðar borgarferðir

Bílstjóri bíður í 5 mínútur frá því að hann staðfestir komu á upphafsstað. Í forpöntun byrjar biðtíminn þó aldrei fyrir bókaðan upphafstíma.

Ferðir frá Keflavíkurflugvelli

Biðtíminn er 100 mínútur frá raunlendingu flugvélarinnar.

Skráning og yfirferð

Bílstjóri staðfestir að farþegi hafi ekki mætt og skráir skýringu. Skráningin skal studd ástæðu, viðeigandi atvikum og skráðum sambandstilraunum. Skýringin birtist með ferðinni í ferðasögu eða kvittun.

Í forpantaðri ferð er ekki innheimt gjald fyrir að farþegi hafi ekki mætt ef bílstjóri var ekki mættur þegar 6 mínútur voru liðnar frá bókuðum upphafstíma og ferðin er ekki hafin. Þetta gildir þótt farþegi hafi ekki afbókað.

Ef ekki er ljóst að skilyrði gjaldsins séu uppfyllt fer málið til yfirferðar hjá Ladies First án innheimtu. Það eitt að ekki hafi náðst samband við farþega fellir gjaldið ekki niður ef önnur skilyrði þess eru uppfyllt.

Teljirðu skráninguna eða gjaldið rangt geturðu óskað eftir yfirferð hjá Ladies First.

11. Ef ferð lýkur fyrr eða bíll bilar

Þú kýst að ljúka ferð fyrr

Ef þú kýst að fara úr bílnum áður en umsömdum áfangastað er náð helst samþykkt ferðaverð óbreytt.

Þetta á ekki við um ferð sem stöðvast vegna bilunar og skerðir ekki rétt þinn vegna galla á þjónustu, vanefnda eða öryggisatvika.

Ef ferð er hafin og bílstjóri stöðvar hana af öryggisástæðum fer málið til yfirferðar hjá Ladies First áður en nokkuð er innheimt.

Ferð klárast ekki vegna bilunar

Ef bíll bilar og ekki er hægt að ljúka ferðinni er ekkert fargjald innheimt og greiðslufrátekt vegna ferðarinnar er losuð.

Önnur ferð er sjálfstæð bókun með eigin ferðaverði og greiðslu.

Lögbundin réttindi þín vegna bilunar eða annarra vanefnda haldast óbreytt.

12. Öryggi og aðstoð

Notaðu viðeigandi öryggisbúnað og fylgdu lögmætum öryggisleiðbeiningum bílstjóra.

Þú getur tilkynnt atvik eða gleymdan hlut í appinu eða haft samband við Ladies First.

Í neyð skaltu hringja í 112. Ladies First er ekki neyðarþjónusta og veitir ekki mannað neyðareftirlit með ferðum í rauntíma.

13. Ferðasaga og kvittun

Ferðaupplýsingar og kvittanir eru aðgengilegar í appinu.

Frátekt á korti er ekki það sama og endanleg greiðsla. Teljirðu gjald eða greiðslu rangt geturðu haft samband við Ladies First og tilgreint viðkomandi ferð.

Ekki senda fullt kortanúmer eða öryggisnúmer í tölvupósti.

14. Leiðréttingar og endurgreiðslur

Teljirðu þig hafa verið ranglega rukkaða eða rukkaðan geturðu óskað eftir yfirferð hjá Ladies First.

Ef yfirferð leiðir í ljós ranga gjaldfærslu er hún leiðrétt. Tími þar til endurgreiðsla eða losun frátektar sést á reikningi getur farið eftir banka eða greiðslumiðlara.

Lögbundin réttindi þín haldast óbreytt.

15. Ábendingar, kvartanir og ágreiningur

Þú getur sent ábendingu eða kvörtun í appinu eða á info@ladiesfirst.is. Tilgreindu viðkomandi ferð, dagsetningu og hvað þú óskar að verði skoðað.

Ladies First tekur við erindum vegna bókunar, greiðslu og þjónustu.

Þú getur einnig leitað til Samgöngustofu vegna leigubílaþjónustu og Neytendastofu vegna verðupplýsinga og neytendaréttar. Ágreiningur getur eftir atvikum farið til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, að uppfylltum skilyrðum nefndarinnar.

Réttur þinn til að leita til viðeigandi stjórnvalda eða dómstóla er óskertur.

16. Gildandi skilmálar

Þú færð aðgang að gildandi skilmálum áður en þú staðfestir bókun.

Breyting á skilmálum breytir ekki afturvirkt samþykktu verði eða skerðir skilyrði þegar staðfestrar bókunar.