Fyrir farþega
Þú bókar ferðina í appinu.
Sækja farþegaappið
Væntanlegt
Hvernig ferðin gengur fyrir sig
Veldu það sem hentar
Í appinu velurðu hvort beiðnin fari til kvenbílstjóra eða næsta lausa bílstjóra.
Appið skiptir ekki yfir í næsta lausa bílstjóra nema þú samþykkir það.
Veldu bíl fyrir 1–4 eða 5–8 farþega. Gefðu upp fjölda farþega og taska. Þú getur einnig valið aukaþjónustu eftir þörfum.
Sláðu inn upphafsstað og áfangastað eða veldu þá á kortinu. Þú getur bætt við viðkomustöðum.
Staðfestu og fylgstu með ferðinni
Fast heildarverð birtist áður en þú staðfestir ferðabeiðnina. Umferðartöf breytir því ekki.
Appið sýnir stöðu leitarinnar og lætur þig vita þegar bílstjóri hefur tekið ferðina.
Í appinu sérðu stöðu ferðarinnar frá því að bílstjóri tekur hana þar til henni lýkur.
Einkunn eða kvittun
Að ferð lokinni geturðu gefið bílstjóranum einkunn eða farið beint í kvittunina. Kvittunin vistast í ferðasögunni.
Algengar spurningar
Áður en þú bókar
Þegar þú notar appið í fyrsta skipti þarftu að skrá þig inn og ljúka við prófílinn. Gefðu upp símanúmer með landsnúmeri svo bílstjórinn geti haft samband vegna ferðarinnar.
Hvernig borga ég?
Greiðslur til Ladies First verða afgreiddar í gegnum Rapyd í appinu. Hægt verður að greiða með korti, Apple Pay eða Google Pay.
Hvað ef ég afbóka?
Afbókun er gjaldfrjáls ef enginn bílstjóri hefur tekið ferðina. Þú getur einnig afbókað án gjalds fyrstu 5 mínúturnar frá því að þú staðfestir bókunina í appinu, óháð því hvenær bílstjóri tekur ferðina.
Ef bílstjóri hættir við ferðina geturðu afbókað án gjalds meðan leitað er að öðrum bílstjóra.
Forpöntun má afbóka án gjalds þar til 60 mínútum fyrir bókaðan upphafstíma. Þú getur einnig afbókað forpöntun án gjalds áður en bílstjóri hefur merkt í appinu að hann sé lagður af stað að sækja þig, eða ef bílstjóri var ekki mættur þegar 6 mínútur voru liðnar frá bókuðum upphafstíma og ferðin er ekki hafin.
Afbókun er einnig gjaldfrjáls vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Við gjaldfrjálsa afbókun er ekkert gjald innheimt og greiðslufrátekt vegna ferðarinnar, ef hún hefur verið gerð, er losuð. Utan þessara tilvika getur afbókunargjald átt við.
Ferð af götunni
Finnirðu lausan bíl frá Ladies First á götunni geturðu tengt ferðina með QR-kóða við appið áður en hún hefst.
Bílstjórinn býr til QR-kóða fyrir ferðina í sínu appi. Þú skannar kóðann í þínu appi.
Hvað verður um gögnin mín?
Upplýsingar um reikning, bókun og ferð eru notaðar til að veita þjónustuna.
Öryggi og aðstoð
Í appinu geturðu tilkynnt atvik eða gleymdan hlut. Í neyð skaltu hringja í 112.